top of page

Frá afhendingu Grænfánans 15. október 2008. Sjá frétt á vef Landverndar.

Grænfánaverkefnið

Njarðvíkurskóli vinnur samkvæmt umhverfisstefnu Reykjanesbæjar. Meginmarkmið með umhverfismennt er að auka þekkingu og virðingu nemenda fyrir umhverfi sínu og skapa jákvætt viðhorf nemenda og starfsmanna til umhverfismála. Með aukinni þekkingu á umhverfismálum og jákvæðu viðhorfi nemenda og starfsmanna er auðveldara að fá þau til að flokka sorp og ganga betur um náttúruna. Nemendur og starfsfólk skólans hafa verið að taka sig á í umhverfismálum síðustu ár. Meðal verkefna skólans hefur verið að flokka pappír, nýta betur pappír með t.d. nota báðar hliðar á blöðum. Prenta einungis það sem er nauðsynlegt og stilla ljósritun í hóf. Nota rafræn boðskipti sé þess kostur, frekar en pappír. Halda umhverfi skólans hreinlegu með þrifum á skólalóð. Yngri nemendur, í 1.-6. bekk, koma ekki með fernur í skólann og drekka mjólk eða vatn í nestistímum. 


Haustið 2007 fékk Njarðvíkurskóli þá viðurkenningu Landverndar að fá að flagga Grænfánanum en Grænfáninn er umhverfismerki vistvænna skóla. Á tveggja ára fresti þarf að endurnýja umsókn um fánann og er þá gerð úttekt á umhverfisstefnu skólans og framkvæmd hennar með skýrslu. Nánari upplýsingar um Grænfánaverkefnið er að finna á heimasíðu Landverndar. 


Stofnað hefur verið umhverfisteymi til að halda utan um umhverfismál skólans og til að setja skýra stefnu í umhverfismálum. Í þessu teymi eru fulltrúar nemenda úr 5.-10. bekk, fulltrúi foreldra, kennara og aðstoðarskólastjóri. Skrifað var undir umhverfissáttmála Njarðvíkurskóla á umhverfisdegi í skólanum 12. september 2007.   Umhverfisteymi skólans hefur einnig gefið út fréttabréfið Umminn auk þess að vera með kynningar á verkefnum teymisins fyrir nemendur á sal.  Fréttabréfið og kynningarnar má skoða hér.

Önnur afhending Grænfánans 4. febrúar 2012.

Sjá frétt á vef Víkurfrétta.

bottom of page